Ég er engin dramadrusla ... bara smá
:MYNDIR:
07.09.2006 15:48:15 / Krissayr

úlalala æ lof jú beibí

Er búin að skipta um blogg .... finnst hitt meira hippog kúl og get sett myndir inn með færslunum ... ójéé´!! Lofa að vera duglegri að blogga þar ef allir verða duglegri að kommenta á skemmtilegu færslurnar mínar um óléttu lífið í Lautarsmáranum ...

www.123.is/krissalitla er nýja fallega fallega bloggið mitt !!


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.08.2006 22:10:59 / Krissayr

Bumba bumba bumba

Jæja ég gerðist svo dugleg að setja inn fleiri myndir í bumbualbúmið .. á eftir að taka nokkrar úr myndavélinni og bæta við ....

Annars finnst mér ég ekkert hafa að segja...

Eg tölvan og sjónvarpið erum hin heilaga þrenna þessa dagana ... því sambýlismaður minn er held ég þessi sem skríður upp í rúm hjá mér á næturnar og kveður mig á morgnana ... Sem sé Brjálað að gera hjá Gaddalíus og ólétta kellan bara heima að hugsa um börn og bú :)

Tók það í mínar hendur að klára að koma okkur fyrir ... fór í iðnaðarmanna gallan með hamar og nagla í hönd og hengdi upp myndir og fíniseraði .. Garðar var ekki alveg viss hvort hann ætti eitthvað að vera að treysta mér fyrir þessu ... Eg benti honum bara fallega á það að ég var til í 22 ár áður en hann kom í spilið og hef meira og minna búið ein (með Ágústu minni auðvitað) frá 18 ára aldri. Einstæðamóðuruppeldið komið í mig ... "Heyri alveg í mömmu segja núna maður á aldrei að vera upp á aðra komin .. maður á auðvitað að vera ánægður með alla þá hjálp sem maður fær og þyggja aðstoð þegar hún er boðin en fyrst og fremst að treysta á sig" ... haha hún mamma er nú kjarnakvendi .. Enda reitir maður hana ekki til reiði nema nauðsyn krefur .. sem að mér fannst jú mjög oft sem unglingur :) En í dag þá er ég ljúf eins og lamb við hana og mótmæli henni bara annað slagið.

En núna er ég bara að bíða og bíða og bíða ... Bíða eftir að Gudda fallega ólétta eigi barnið sitt svo ég geti farið að bíða eftir að eiga barnið mitt :)

Annars er skólasetning hjá mér á morgun VÚHÚ!! Þannig að nú fer ég að hafa eitthvað gera og get verið gólandi allan daginn... Svo byrjar kórinn á þriðjudag og svo verð ég líka að gera svolítið skemmtó á miðvikudagskvöldum ... Þannig að hann Gaddi klárar fótboltann núna á næstunni og þá er hans að vera  heima með börn og bú ... úúújeee...

Kveð að sinni  með knúsi og kossi ...eða eitthvað álíka

Krissa


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.08.2006 20:26:21 / Krissayr

Ég kann líka að vera væmin og rómó :)

Fólk er oft að hrósa hinum og þessum á heimasíðunum sínum .. sumir eru með hrós vikunar og eru voðalega duglegir að tala fallega um allt fólk .. ég er voða ódugleg við það .. voða ódugleg að segja að ég sé stolt af hinum og þessum ... Í dag í lífinu mínu eru tvær manneskjur sem er ógurlega stolt af  (ég er samt stolt af öllum sko).. það eru Gudda mín og Gaddi .. Ég er ógurlega stolt af Guddunni minni fyrir hvað hún er búin að vera stabíl og dugleg síðustu mánuði .. ekki látið neina óléttu á sig fá og bara haldið ótrauð áfram. Hún er einstaklega dugleg stelpa.. það finnst mér allavega .. það er svo fyndið hvað við erum góðar vinkonur því við erum svooo ólíkar en við hittumst á miðri leið .. það finnst mér æði.

Síðan er það hann Gaddi minn ég er svo mest stolt af honum hvað hann er búin að vera duglegur að halda geðheilsunni síðustu mánuði... sama hvað hefur bjátað á þá einhverveginn er hann þarna við hliðin á mér eins og klettur og segist ekki ætla að fara neitt. Ég held að ég sé ekki búin að vera bestasta kærasta í heimi, stundum er ég ósanngjörn fúl og pirruð bara útaf engu og hef ekkert verið of spör að láta það bitna á honum en einhverveginn þá er eins og honum takist voðalega oft að bara horfa framhjá þessu og hugsa þetta lagast .. ég er stolt af honum vegna þess. Hann er ástin mín hann Garðar Snorri og ég ætla ekkert að sleppa honum svo auðveldlega ;)

 

 



Já þetta var semsagt hróshorn Krissu ....


» 7 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 19:03:26 / Krissayr

Heitirpottar

Já sundlaugar og pottarnir þar eru ansi skemmtilegur staður til að hanga á ... Í dag fór ég í sund með Gadda og Gústu, ég hafði það voða kósý í pottinum á meðan þau fóru beint út í sundlaug að busla og hafa læti .. Eftir að ég var búin að hafa það voða gott í svona 2 mín í bubblunum þá komu kona og karl og settust við hliðin á mér og byrjuðu að tala saman. Ég var nú ekkert voða mikið að reyna að hlusta á samtalið þeirra en það gat ómögulega farið framhjá mér og hinum sem í pottinum voru þar sem þau ræddu saman frekar hátt og þeim var frekar heitt í hamsi. Konan byrjaði " vilt þú fá sófasettið" Hann "já nei eða það skiptir ekki máli" Þá hreitti hún útúr sér nei við gefum það þá bara eða hendum því (þarna var ég að spá í að blanda mér inn í og spurja hvernig sófasett þetta væri þar sem mig langar svo mikið í nýjan sófa í mína stofu)

Síðan byrjaði þetta rosa samtal um að karlinn yrði nú að selja bílinn og hann var ekki sammála konunni um það mál, hann skildi sko ekkert vera að selja bílinn, hún tjáði honum að hún þyrfti að losna við lánið og það væri bara hægt með því að selja bílinn.. þegar þarna var komið sögu var ég svona aðeins farin að átta mig á því að þau væru kannski ný skilin og voru að skipta búi. En ég reyndi nú bara að færa mig svona svo ég væri nú ekki of mikið að hnýsast í þeirra mál. Þá fóru þau að tala hærra. Um hvað hún hefði nú verið meðvirk með honum og afhverju hann hafi ekki tekið sig á fyrr og að Guð hefði nú bænheyrt hana með því að hjálpa henni að fara úr þessum ólifnaði sem þau lifðu .... Á endanum ákvað ég nú bara að standa upp og fara út í laug og leika mér með Garðari og Ágústu.  Ég er mikið að pæla í hverjir velja heitupottana til þess að útkljá svona mál ? Annars geturu komist að ýmsu ef þú gerir þér oft ferðir í sund .. slúðursögurnar berast sko þar klárlega :)

Jæja farin að vera húsmóðir og elda

Krissa Kópavogsmær


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.08.2006 01:35:34 / Krissayr

Svoooo ráðsett

Ég er orðin svo ráðsett kona að laugardagskvöldin mín fara í sjónvarpsgláp kúr og kelerí (jaa eða voða lítið um kelerí svolítið erfitt í mínu líkamsástandi) Var að enda við að horfa á THE PATRIOT shiiiit erum við að tala um að trekk í trekk komu þessi heimskulegu atriði þar sem hellingur af karlmönnum stóðu hvor á móti öðrum aðrir í bláu hinir í rauðu og skiptust á að skjóta hvorn annan. Þeir voru ekkert í því að skjóta á sama tíma .. nehh við skulum bara skiptast á!!

Annars var svaðalegt stelpupartý haldið í gær heima hjá Árný, ég og Harpa tókum hellings tíma í að gera okkur að mestu skutlunum :) og hún gerði heiðarlega tilraun til að ganga í háæluðum skóm .. við skulum segja að það hafi ekki tekist voða vel og það eru ekki margir sem geta slasað sjálfan sig á fæti með hinum hælnum ... Kannski set ég inn myndirnar sem ég tók .. þær voru samt ekkert of margar ... Ég er alveg lélegust í þessum myndabransa ...

Svo er ég alltaf að reyna að væla út útlandaferð með kæróinum mínum .. Síðasti sjens að fara til útlanda tvö saman í svona ár til tvö ... og fyrsti sjens haha :) en ég má víst ekki fljúga mikið lengur ... En mig þyrstir svo í Danmerkur ferð ... ég á svo marga vini þar og finnst svo gaman að spóka mig á strikinu og á röltinu þarna .. fara í H&M og versla OF MIKIÐ!! Það er líka yndislegt að skipta annað slagið um umhverfi .. ekki það að mér líður svo vel heima hjá mér að ég nenni varla útúr húsi þessa dagana vil bara vera heima og hafa það kósý ...

Jæja tími á LAW and ORDER

knús&kram

Krissa ráðsetta


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 17:01:28 / Krissayr

Myndir !

Var að setja inn myndir frá þessari snilldar verslunarmannahelgi!! Segði svo að það sé ekki fjör að vera bara í borginni!!

Föstudagkvöldið leit samt út fyrir að eiga að vera voða rólegt og við hjónakornin bara tvö í kotinu .. En síðan hringdi ein sæt stúlka í mig hálfgrátandi því hún var ekki í eyjum og fannst það of erfitt .. þannig að ég bauð henni í kaffi og við æfðum okkur að syngja nýja þjóðhátíðarlagið við mismunandi unditektir .. Óskar og Duddi kíktu svo líka og hlustu á okkar fagra söng :) okkur tókst allavega að heilla dúdda því honum fór að finnast lagið skemmtilegt ...

Annars var bara étið hunangserjós og strákarnir sendir út í skoppu eftir ís ...

Laugardagur og sunndagur fóru í partýstand sem heppnaðist mjög vel og eru myndirnar þaðan! Á mánudeginu leið mér eins og ég væri þunn og ég bara svaf og svaf !

Ég endurheimti barnið mitt heim við mikla gleði en hún nennti nú ekki að stoppa lengi hjá mömmu sinni .. fór á laugardaginn í ferðalag með ömmu sinni og afa og ætlar að vera í viku .. ég er farin að halda að ég sé leiðinleg ;) En hún kann sko að nýta sumarið daman og er orðin algjör ferðalangur .. Ég setti líka inn myndir á síðuna hennar þar sem við Garðar vorum að reyna að kenna henni að hjóla !

En kveð í bili

óverandát

krissa


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 12:23:29 / Krissayr

Versló versló versló

Verslunarmannahelgin komin og sumarið að klárast! Ég veit ekki afhverju mér líður alltaf þannig þegar þessi helgi er búin. Þá er maður farin að huga að skólanum og svona.

Annars verður þessi helgi bara haldin hér í borginni! Ég´er lítil útihátiðarmanneskja og hef bara einu sinni farið á útihátið og get ekki sagt að hún hafi endað  vel enda fer mér illa að drekka marga daga í röð... Síðan þá hef ég bara farið í svona lítil útileiguferðalög um versló á fluðir og þess háttar.

Þetta árið ætla ég bara að vera með mína risa bumbu og mínum risa manni hér í borginni í parystandi .. Erum að fara á litlu þjóðhátið í garðinum hjá Guddu sætu á laugardaginn og svo er Dúddi með grillparty á sunndag .. sem ég vona að Petra og Guðbjörg ætla að koma með mér í því það er svo gaman að skemmta sér með þeim .. þá verð ég aftur lítill villingur... 

Ég er svo andlaus þessa dagana að ég hef bara ekkert að skrifa um ... Var að lesa gamlar blogg færslur í gær og ég hló frekar mikið af ruglinu í sjálfri mér .. En það var fjör :) Núna er ég að þykjast vera í svo miklum fullorðins leik .. ég er samt alveg að fýla það í botn ..

Nú bíð ég bara spennt eftir að Gudda bumba fæði fallega barnið sitt sem á að koma eftir tvo mánuði ! TVO MANUÐI GUDDA! og svo fer ég að bíða eftir mínu barni... Mér finnst samt skemmtilegra að bíða eftir henni því þá þarf ég ekki að kvíða fæðingunni haha :)

En er farin að sinna fallegustu prinsessunni

Kveðja

Kristín RISA bumba


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 12:10:20 / Krissayr

Amma Lóló og tæklingar

Ég kann ekkert á þetta blogg mig langar svo að geta sett inn svona myndir þegar ég blogga!! Einhver sem vill aðstoða mig ???

Annars var farið í annað ferðalag sumarsins um síðustu helgi.. við fórum ásamt G-hópnum eins og þeir kalla sig í Þjórsárdal .. Yndislega tilbreyting að komast aðeins ur hversdagsleikanum! Þetta var mögnuð ferð og mikið hlegið og fíflast !  Ég setti inn myndir !! Reyndar er ég voðalega lélegur ljósmyndari ..

Annars er tíminn hálfnaður sem Gústa min er í burtu.. ég sakna hennar mest. ! 1. sept skiptir hún um leikskóla daman og verður formlega kópavogsmær ..

Ég held að þetta sé fyrsta sumarið mitt í sögu lífsmíns sem ég hlakka svo til að verði búið! Mér finnst lífið mitt í svo mikilli biðstöðu þessa dagana og ég veit voða lítið hvert stefnir .. þannig að ég hlakka svo til þegar haustið kemur og skólinn og kórinn og allt sem ég hef fyrir stafni á veturnar byrjar. Og auðvitað hlakka ég mest til að fá litla bumbubúann minn í hendurnar! Annars er magastærðin mín orðin 99 CM ekki amalegt það! 60 cm í viðbót og þá er ég jafnstór á alla kanta :)

En toppmódel heima hjá Tinnu sætu í kvöld þannig að ég hef eitthvað að stefna að :)

Lifiði heil

Krissa ofurólétta


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 19:30:53 / Krissayr

eg er ...

Farin í fýlu útaf kommenta slappleika í fólki!! það eru margir að koma inn á síðuna á dag og þið megið alveg segja eitthva skemmtilegt ... Ekki nema þið séuð óvinir mínir sem ég held að ég eigi ekki margar í dag...  Þannig að segiði nú eitthvað skemmtilegt við þessum drepleiðinlegu færslum mínum því lífið mitt er svo hamingjusamt og dramalaust að ég get ekki einu sinni bloggað lengur ... koma svo.. 

» 9 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 18:59:21 / Krissayr

Vangaveltur síðustu daga.

Um daginn var ég á kaffihúsi með vinkonu minni og þar  barst í tal foreldrahlutverkið, við vorum að ræða hvað væri erfiðast við að vera foreldri.. vinkona mín sagði mér frá því að þegar hún var lítil í skóla þá var hún í lífsleiknitímum og fór heim með spurningalista fyrir mömmu sína og pabba og þar var meðal annars spurningin hvað er erfiðast við að vera foreldri ? Svarið sem mamma hennar gaf var að það sé ekki hægt að yfirfæra sína lífsreynslu yfir á börnin sín. Ég held að ég verði að vera sammála henni. Ég á reyndar mjög ungt barn en þetta er eitthvað sem ég hræðist mest þegar hún eldist að hún eigi eftir að klessa á sömu veggi og ég. Ut frá þessari umræðu fór ég svo mikið að hugsa til baka um unglingsárin mín, hvað þau voru í rauninni flókin og erfið en í leiðinni mótuðu mig að þeirri manneskju sem ég er í dag. Fyrir suma að vera unglingur er mjög mikilvægt að passa inn í hópinn, “aðal” hópinn. Þegar ég var unglingur þá ákvað ég að ég vildi lifa rokkara lífi.. ég var svo óhörðnuð og vissi ekkert hver ég var að ég skipti bara um tónlistarsmekk, klæðaburð og hegðun eftir því hverja ég var að umgangast, ég sem sé var margir persónuleikar, en púkinn í mér náði síðan yfirhöndinni og ákvað ég að lifa í sukki og svínaríi því mér fannst það töff. Þegar ég lít til baka í dag þá finnst mér það ekki töff en ég lærði margt og bý að dýrmætri en erfiðri reynslu sem ég get miðlað áfram og reynt að miðla leiðinni sem mér tókst að feta út úr ólifnaðinum.

Ég þekki unga stelpu sem er falleg, gáfuð og hörkudugleg.. hún er lika mjög klók. Þessari stelpu fylgist ég með og ég sé mig í henni, ég sé að hún er á góðri leið að feta minn veg og mér finnst það erfitt, mér finnst erfitt að geta ekki tekið í hendinna á henni og leyft henni að finna sársaukann og eftirsjánna sem fylgir þessari leið, en í leiðinni verð ég bara að standa hjá og reyna að leiðbeina eftir bestu getu, reyna að vera til staðar en ekki ætlast til of mikils, reyna að rétta fram hjálparhönd án þess að segja já ég sagði þér það. Þessi unglinsár eru furðuleg og oft þegar ég tala við fólk þá er eins og það séu til margir heimar á þessum árum, margt er svo gerólíkt að það er ótrúlegt að það hafi átt sér stað á sama landinu.

 

 



Annars eru þetta bara svona vangaveltur lífsins því allt hefur jú sinn tilgang er það ekki ?

 

 



Óléttan gengur voða vel hjá mér fyrir utan það að ég get bara labbað annahvern dag J hin daginn ligg ég í rúminu og reyni að finna góða stellingu til að finna ekki til í grindinni .. spennandi humm ..

Í dag vaknaði ég við að sólin skein inn um gluggan hjá mér og ég varð svo glöð.. loksins skriðu allir maurarnir ur búinu sínu og söfnuðust saman niður í bæ .. það var líf í borginni í dag ..


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.07.2006 16:54:48 / Krissayr

Myndir

Setti tvær bumbumyndir í bumbualbúmið ... Þær voru sko teknar í útlöndum og nú þarf ég a ðfara að taka nýjar :) En svo setti ég allar búlgaríumyndirnar inn á síðunna hennar Ágústu endilega kíkiði þangað .. Og ekki vera hrædd að spurja um leyniorðið .. er bara með þetta svona til að geta fylgst með hverjir skoða síðuna :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.07.2006 00:22:44 / Krissayr

Hvar er sumarið ??

Loksins er þessi júní mánuður búinn!! ég held að ég hafi aldrei upplifað jafn langan mánuð .. kannski er það rigningin ? Hver veit.

Eg er búin að gera svo margt þennan mánuð:

var í Búlgaríu til 8 júní

Fór í útskrift

Fór í matarboð

Fór í kistulagningu

Fór í matarboð

Fékk íbúðina okkar

Málaði íbúðina okkar

Fór í kaffiboð

Fór í jarðaför

Flutti í íbúðina okkar

Fór í 25 ára afmæli hjá nöfnu minni

Fór í 28 ára afmæli hjá Tótu frænku

Keypti ískáp, þurkara og uppþvottavél

Fór í 2ja ára afmæli hjá Aroni Snæ

og svo hef ég mjög líklega farið í fleiri matarboð því ekki hef ég þurft að kaupa inn í ískápinn hjá mér allan mánuðinn, en þið vitið ekki hvað ég er glöð að þessi mánuður er búinn.

 

Við Ágústa förum í sund á hverjum morgni núna. Ágústa er á sundnámskeiði hjá pabba hans Garðars og er orðin svo dugleg að hun kemur ekkert upp á yfirborðið þegar við erum í sundi. Er bara alltaf i kafi og kemur annað slagið upp til að anda.

Ég er bara orðin  feit og fín eins og hvalur með hobbita tær :) og það eru 4 mánuðir eftir. Vá hvað við getu  ekki beðið eftir að fá litla barnið í bumbunni minni í hendurnar.

Á föstudaginn erum við hjúin og öll fjölskyldustrollan mín að fara í afslöppun í sumarbústað.. vá hvað ég ætla ekki að gera neitt nema vera með tærna upp í loft og liggja í pottinum og látta Gadda sæta stjana við mig ..


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 21:12:27 / Krissayr

Lífið kemur stanslaust á óvart...

Orð dagsins

 Sigurvegarar í lífsins leik eru ekki þeir sem aldrei hafa misstigið sig í lífinu heldur þeir sem hafa aftur og aftur misstigið sig en aldrei gefist upp. Sigurvegarar öðlast þroska við hver mistökog sjá þau eins og áfanga á leið til sigurs.

 

 



Annars er ég komin heim frá útlandinu og hef það voðalega gott.

Á laugardaginn var bæði gleði og sorgardagur í mínu lífi.

Elsku sæti Gaddi minn útskrifaðist og er núna viðskiptafræðingur.

Hann er flottastur og bestur og ég er svo stolt af honum.

Mér finnst hann besti kærasti sem stelpa getur átt.

Sorgaratburðinu held eg fyrir mig.

 

 



Annars erum við á fimmtudaginn að fara í sónar og sama dag erum við að fá íbúðina okkar sem við festum kaup á áður en við fórum út.


» 12 hafa sagt sína skoðun

02.06.2006 08:31:09 / Krissayr

Afmaeli

Hun eg a afmaeli i dag ... hun eg a afmaeli i dag ....

Er i Bulgariu og tad er bara voda fjor ... solin er reyndar eitthvad ad svikja okkur og er buin ad vera ad fela sig a bakvid skyinn mest allan timan sem vid hofum verid her .. en vid hofum nu samt haft nog ad gera... verdlagid her er grin .. ad fara fint ut ad borda fyrir 3 kostar mestalagi 3500 ef ad madur pantar ser voda fina steik..

En annars byd eg bara ad heilsa og aetla ad minna ykkur aftur a ad uppahalds eg a afmaeli i dag .. haha

Kvedja

Kristin sem er ekkert brun i Bulgariu


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.05.2006 11:22:34 / Krissayr

Síðustu dagar...

Síðustu dagar hjá mér hafa verið mikill rússíbani .. einkennst af bitur og reiði og óöryggi... stundum er hef ég verið svo full af reiði að ég get ekki sofnaði .. stundum kem ég þessu frá mér .. en sumarið mitt er í miklu óöryggi ...

En ég hef lært á lífsleiðinni að ég get stjórnað þessu sjálf, ég get beðið um aðstoð og reynt að yfirstíga þetta ... maður hefur alltaf val ....

ég hef einnig lært að það skiptir engu máli hvað gerist, eða hversu dimmt virðist yfir öllu í dag. Lífið heldur áfram og á morgun kemur betri dagur.

 

Ég hef lært, að það að verða sér úti um peninga og hluti, er ekki það sama og að skapa sér líf.

Ég hef lært, að af og til býður lífið okkur upp á annað tækifæri.

 

Ég hef lært, að maður getur ekki farið í gegnum lífið með hornabolta-hanska á báðum höndum. Öðru hvoru verðu maður líka að gefa boltann til baka.

Ég hef lært, að þegar ég ákveð eitthvað beint út frá hjartanu, þá hef ég yfirleitt hitt á hina einu réttu ákvörðun.

Ég hef lært, að þó að ég sé sár, þurfi ég ekki að særa aðra.

Ég hef lært, að á hverjum degi eigi maður að rétta öðrum höndina. Allir þurfa hlýjar hugsanir og vinalegt klapp á axlirnar.

Ég hef lært, að ég er alltaf að læra eitthvað nýtt.

 




» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9